Eyða aðgangi

Síðast uppfært 20. nóvember 2026

Textinn er birtur á íslensku og ensku. Um notkunarskilmálana og vinnslusamninginn gildir að íslenska útgáfan gengur framar gagnvart viðskiptavinum með staðfestu á Íslandi en enska útgáfan gagnvart öllum öðrum viðskiptavinum.

Hér kemur fram hvernig þú eyðir aðgangi þínum að Slapp Work, sem Vestra AI ehf. rekur, og hvað verður um upplýsingarnar þínar. Þú getur eytt aðganginum í appinu eða á vefnum, eða beðið okkur um að gera það.

1. Í appinu eða á vefnum

  • Í appinu (iOS og Android): opnaðu flipann Valmynd og ýttu á Eyða aðgangi neðst á síðunni.
  • Á vefnum: smelltu á prófílmyndina þína, veldu Stillingar og smelltu á Eyða aðgangi neðst á síðunni.

Ýttu á Áfram, skrifaðu EYÐA í reitinn og veldu Eyða aðgangi varanlega. Aðganginum er eytt strax og þú skráist út. Ekki er hægt að afturkalla eyðinguna.

Ef þú ert eini eigandi fyrirtækis þar sem aðrir notendur eru virkir þarftu fyrst að gera einhvern annan að eiganda. Ef þú ert eini virki notandi fyrirtækis með greidda áskrift þarftu fyrst að segja áskriftinni upp.

2. Beiðni án appsins

Ef þú kemst ekki inn í Slapp Work getur þú beðið um eyðingu með tölvupósti á vestra@vestra.is. Sendu hann frá netfanginu sem aðgangurinn er skráður á, með efnislínunni „Eyða aðgangi“, svo við getum staðfest að beiðnin komi frá þér.

Við eyðum aðganginum á sama hátt og lýst er hér að neðan og svörum innan mánaðar.

3. Hverju er eytt?

  • Innskráning: aðganginum hjá innskráningarþjónustu okkar er eytt, ásamt nafni, netfangi, lykilorði og tengdum innskráningum (t.d. Microsoft, Google eða Apple). Ekki er hægt að skrá sig inn á hann aftur. Nýskráning með sama netfangi byrjar frá grunni.
  • Prófíll: í hverju fyrirtæki er nafninu þínu breytt í „Fyrrum starfsmaður“ og netfangi, starfsheiti, deild, starfsstöð, símanúmeri, kynningu, prófílmynd, forsíðumynd og yfirmanni eytt. Aðgangurinn er gerður óvirkur og ekki er hægt að virkja hann aftur.
  • Virkni: fylgjendur og þau sem þú fylgir, lokanir, aðild að hópum og hópspjöllum, beiðnir um aðild að hópum, svör við viðburðum, tilkynningar, vistaðar færslur, auðkenni fyrir ýtitilkynningar og virknistaða. Skráning þín sem yfirmanns samstarfsfólks er einnig fjarlægð.
  • Skráning um þig: skráning daglegrar virkni þinnar, upplýsingar um hvaðan aðgangur þinn kom og val þitt um notkunarmælingar.
  • Fyrirtæki: ef þú ert eini virki notandi fyrirtækis er því lokað um leið og gögn þess síðan varðveitt og þeim eytt eins og lýst er í 6. gr. persónuverndarstefnunnar.

4. Hvað er varðveitt?

  • Efni sem þú hefur skrifað (færslur, athugasemdir, spjallskilaboð og greinar í þekkingarsafni) tilheyrir fyrirtækinu, sem ber ábyrgð á því, og birtist áfram undir nafninu „Fyrrum starfsmaður“. Sama á við um viðbrögð, atkvæði í könnunum, staðfestingar tilkynninga og merkingar um séðar færslur, svo talningar breytist ekki. Bein samtöl haldast hjá viðmælanda þínum. Viljir þú að efnið hverfi getur þú eytt því áður en þú eyðir aðganginum eða beðið vinnuveitanda þinn um að eyða því.
  • Skráning aðgerða (hvaða aðgerðir voru framkvæmdar í þjónustunni og hvenær, aldrei það sem þú skrifaðir) er áfram hluti af tölum fyrirtækjanna en auðkenni þín eru fjarlægð úr henni, þar á meðal úr skráningu á aðgerðum annarra sem varða þig. PostHog, sem annast notkunarmælingar fyrir okkur, er beðið um að eyða upplýsingum um þig þar. Sjá 6. gr. persónuverndarstefnunnar.
  • Tæknilegar annálaskrár (svo sem IP-tala, tími og villur) eru varðveittar í takmarkaðan tíma sem þjónustuaðilar okkar ákveða; hjá Vercel í að hámarki 30 daga.
  • Reikningar og bókhaldsgögn fyrirtækja eru varðveitt í sjö ár frá lokum reikningsárs, eins og kveðið er á um í 20. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald.

Nánari upplýsingar eru í persónuverndarstefnunni. Spurningar má senda á vestra@vestra.is.