Notkunarskilmálar

Síðast uppfært 20. nóvember 2026

Textinn er birtur á íslensku og ensku. Um notkunarskilmálana og vinnslusamninginn gildir að íslenska útgáfan gengur framar gagnvart viðskiptavinum með staðfestu á Íslandi en enska útgáfan gagnvart öllum öðrum viðskiptavinum.

Þessir skilmálar gilda um notkun fyrirtækja og stofnana á Slapp Work, samskiptamiðstöð vinnustaðarins á vef, iOS og Android. Slapp Work er rekið af Vestra AI ehf., kt. 570125-0360, Bolholt 8, 105 Reykjavík („Vestra“ eða „við“). Með því að stofna fyrirtæki í Slapp Work, velja áskrift eða nota þjónustuna samþykkir fyrirtækið („viðskiptavinur“) skilmálana.

1. Þjónustan

Slapp Work er lokaður samskiptavettvangur fyrir starfsfólk: fréttaveita, hópar, tilkynningar, spjall, viðburðir, starfsmannaskrá, skipurit og þekkingarsafn, auk stjórnborðs fyrir stjórnendur. Hvaða eiginleikar eru í boði ræðst af áskriftarleið viðskiptavinar.

Þjónustan er eingöngu seld fyrirtækjum, stofnunum og félögum til nota fyrir starfsfólk sitt og samstarfsaðila. Hún er ekki ætluð einstaklingum til einkanota.

2. Aðgangur og notendur

  • Sá eða sú sem stofnar fyrirtæki í Slapp Work verður eigandi þess og staðfestir að viðkomandi hafi umboð til að skuldbinda viðskiptavin samkvæmt skilmálunum.
  • Stjórnendur viðskiptavinar ráða hverjir fá aðgang (með boði, boðskóða, staðfestu léni, einskráningu eða notendaskrá) og bera ábyrgð á að aðgangi sé lokað þegar fólk hættir.
  • Notendur bera ábyrgð á að gæta lykilorða og innskráningarleiða. Viðskiptavinur skal tilkynna okkur án tafar ef grunur er um óheimilan aðgang.
  • Viðskiptavinur ber ábyrgð á að notendur hans fari eftir þessum skilmálum.

3. Prufutími

Nýtt fyrirtæki fær 14 daga prufutíma án endurgjalds og án greiðsluupplýsinga. Að prufutíma loknum lokast aðgangur starfsfólks þar til stjórnandi velur áskriftarleið. Efnið er geymt í minnst 90 daga eftir það og opnast aftur um leið og áskrift er virk, svo lengi sem því hefur ekki verið eytt eins og lýst er í 11. gr. Ekki er boðið upp á ókeypis áskriftarleið.

4. Áskriftir og verð

  • Hver áskriftarleið hefur mánaðarlegt grunnverð sem inniheldur tiltekinn fjölda virkra starfsmanna, auk verðs fyrir hvern virkan starfsmann umfram það. Gildandi verð og innihald leiða koma fram í stjórnborði (Stjórnborð → Áskrift).
  • Virkur starfsmaður er notandi með virkan aðgang að fyrirtækinu. Fjöldinn uppfærist sjálfkrafa þegar fólk bætist við eða er gert óvirkt og mismunur innan tímabils er reiknaður hlutfallslega.
  • Greitt er fyrirfram, mánaðarlega eða árlega. Árleg greiðsla er á lægra verði. Skipt er á milli mánaðarlegrar og árlegrar greiðslu við næstu endurnýjun.
  • Öll verð eru án virðisaukaskatts og söluskatts, sem leggjast á eftir því sem lög kveða á um. Þegar greitt er í gegnum Polar (sjá 5. gr.) ákvarðar Polar og innheimtir virðisaukaskatt eða söluskatt miðað við staðsetningu viðskiptavinar og skattnúmer hans og birtir hann við greiðslu og á reikningi sínum. Sé virðisaukaskattur ekki innheimtur ber viðskiptavinur ábyrgð á þeim virðisaukaskatti sem honum ber sjálfum að standa skil á samkvæmt reglum heimalands síns (öfug skattskylda); á Íslandi er fjallað um þær reglur í 35. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.
  • Við getum breytt verðum með minnst 30 daga fyrirvara. Breyting tekur gildi við næstu endurnýjun eftir að fyrirvarinn er liðinn. Hafi viðskiptavinur samið um fast verð í skriflegum samningi gildir það út samningstímann.

5. Greiðslur

Grunnur og Pro

Greitt er með korti í gegnum Polar Software, Inc. („Polar“), sem er endursöluaðili okkar og söluaðili (e. merchant of record) gagnvart viðskiptavini. Polar gefur út reikninga, innheimtir greiðslur og skatta og um greiðsluna gilda jafnframt kaupskilmálar Polar. Við geymum ekki kortaupplýsingar. Stjórnendur geta séð reikninga og breytt greiðsluupplýsingum í stjórnborði (Stjórnborð → Áskrift).

Enterprise

Enterprise-áskriftir eru gerðar með skriflegum samningi og greiddar árlega fyrirfram gegn reikningi frá Vestra AI ehf.. Viðskiptavinir á Íslandi greiða með kröfu í netbanka en aðrir viðskiptavinir með millifærslu. Gjalddagi er 14 dögum eftir útgáfudag reiknings nema um annað sé samið. Dráttarvextir reiknast samkvæmt 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Vanskil

Mistakist kortagreiðsla reynir Polar hana nokkrum sinnum aftur á næstu vikum og stjórnendur sjá tilkynningu í stjórnborði. Takist greiðsla ekki lýkur áskriftinni og aðgangi starfsfólks er lokað þar til áskrift hefur verið greidd. Sé reikningur vegna Enterprise-áskriftar ógreiddur 30 dögum eftir gjalddaga getum við lokað aðgangi starfsfólks að undangenginni tilkynningu. Efni viðskiptavinar er varðveitt í samræmi við 11. gr.

6. Uppsögn

  • Viðskiptavinur getur sagt upp áskrift hvenær sem er í stjórnborði. Uppsögn tekur gildi í lok greidds tímabils og aðgangur helst opinn þangað til.
  • Greidd tímabil eru ekki endurgreidd nema lög kveði á um annað eða við höfum brotið gegn skilmálunum með verulegum hætti.
  • Enterprise-samningar eru uppsegjanlegir eins og um er samið í þeim. Sé ekki um annað samið endurnýjast þeir um eitt ár í senn nema þeim sé sagt upp með 30 daga fyrirvara fyrir lok samningstíma.
  • Við getum lokað aðgangi tímabundið ef viðskiptavinur eða notendur hans brjóta verulega gegn 7. gr., án fyrirvara ef það er nauðsynlegt til að afstýra tjóni. Hvor aðili um sig getur sagt samningnum upp ef hinn aðilinn brýtur verulega gegn honum og bætir ekki úr innan 30 daga frá skriflegri tilkynningu. Við getum einnig sagt upp þjónustunni með 90 daga fyrirvara af öðrum ástæðum og endurgreiðum þá ónotaðan hluta greidds tímabils.

7. Notkunarreglur

Óheimilt er að nota Slapp Work til að:

  • birta eða dreifa efni sem er ólöglegt, meiðandi, felur í sér áreitni eða hatursorðræðu, eða brýtur gegn réttindum annarra;
  • dreifa spilliforritum, ruslpósti eða reyna að komast í kerfi eða gögn sem viðkomandi hefur ekki heimild til;
  • trufla rekstur þjónustunnar, álagsprófa hana eða sniðganga takmarkanir á aðgangi eða áskriftarleiðum;
  • afrita, bakþýða eða endurselja þjónustuna eða nota hana til að smíða samkeppnisvöru.

Stjórnendur viðskiptavinar geta fjarlægt efni og lokað aðgangi notenda. Við getum fjarlægt efni sem brýtur augljóslega gegn lögum eða þessum reglum.

8. Efni og gögn viðskiptavinar

  • Viðskiptavinur og notendur hans eiga það efni sem þeir setja inn (færslur, athugasemdir, skilaboð, skrár og myndir). Við fáum einungis þau réttindi yfir efninu sem þarf til að veita þjónustuna.
  • Við vinnum persónuupplýsingar í vinnusvæði viðskiptavinar (prófíla og efni) sem vinnsluaðili fyrir hans hönd samkvæmt vinnslusamningi, sem er hluti af skilmálunum.
  • Við skráum hvernig þjónustan er notuð, aldrei efni hennar, til að innheimta fyrir hana og til að reka hana, tryggja öryggi hennar, styðja og bæta hana. Það gerum við sem ábyrgðaraðili, samkvæmt skilmálunum í 1. gr. vinnslusamningsins; því er lýst í persónuverndarstefnu okkar.
  • Viðskiptavinur ber ábyrgð á að upplýsa starfsfólk sitt um það sem stjórnendur hans og aðrir notendur geta séð um það í þjónustunni og á lögmæti eigin notkunar sinnar á þeim upplýsingum (sjá 4. gr. vinnslusamningsins).
  • Við notum ekki efni viðskiptavinar til auglýsinga, seljum það ekki og notum það ekki til að þjálfa gervigreindarlíkön.

9. Réttindi okkar

Vestra AI ehf. á Slapp Work, hugbúnaðinn, vörumerkin og hönnunina. Viðskiptavinur fær á áskriftartímanum óframseljanlegan og almennan rétt til að nota þjónustuna fyrir eigin starfsemi. Ábendingar sem okkur berast um þjónustuna megum við nýta án endurgjalds.

10. Rekstur og breytingar

  • Við kappkostum að þjónustan sé aðgengileg allan sólarhringinn en ábyrgjumst ekki að hún sé alltaf án truflana, nema um uppitíma sé samið í Enterprise-samningi. Fyrirhugað viðhald er tilkynnt með fyrirvara þegar hægt er.
  • Við þróum þjónustuna stöðugt og getum breytt eiginleikum. Við fjarlægjum ekki eiginleika sem skipta viðskiptavin verulegu máli á greiddu tímabili án þess að bjóða sambærilega lausn eða hlutfallslega endurgreiðslu.
  • Farsímaforritin eru sótt í App Store og Google Play og um þau gilda jafnframt skilmálar þeirra verslana.

11. Gögn við lok viðskipta

Eftir að áskrift lýkur, eða prufutíma lýkur án áskriftar, varðveitum við gögn viðskiptavinar í minnst 90 daga svo hann geti haldið áfram eða fengið afrit. Stjórnendur viðskiptavinar geta sótt afrit af því efni hans sem þeir hafa aðgang að í þjónustunni á algengu, tölvulæsilegu sniði (JSON) í stjórnborðinu, líka eftir að áskrift lýkur. Í afritinu eru ekki einkasamtöl sem stjórnandinn sem tekur afritið á ekki aðild að, ábendingar um efni, boð, tilkynningar þjónustunnar, vistaðar færslur, fylgjendur og lokanir, beiðnir um aðild að hópum, lestrarstöðu spjalls né skráningu þjónustunnar á því hvernig hún er notuð (sjá persónuverndarstefnuna); myndbönd eru talin upp og afrit af þeim fást sé þess óskað. Í afritinu kemur fram hverjir hafa séð og staðfest færslur og hvenær. Önnur afrit getur viðskiptavinur fengið hjá okkur þegar hann hefur til þess lagagrundvöll. Við eyðum gögnunum innan 30 daga frá því að eigandi viðskiptavinar óskar þess í stjórnborðinu eða með tölvupósti á vestra@vestra.is, enda hafi virkri áskrift eða samningi verið lokið. Beiðni í stjórnborðinu tekur gildi sjö dögum eftir að hún er gerð og fram að því má draga hana til baka. Annars eyðum við gögnunum um sex mánuðum eftir að viðskiptum lýkur, en aldrei fyrr en dagsetning eyðingarinnar hefur verið stjórnendum viðskiptavinar aðgengileg í appinu í minnst 30 daga. Fyrir utan þann tíma sem eyðing úr kerfum þjónustuaðila okkar getur tekið frestum við eyðingu aðeins ef lög krefjast varðveislu, ef viðskiptavinur óskar eftir lengri tíma eða ef við gerum hlé á henni til að ljúka málum við viðskiptavininn. Eyðing úr kerfum þjónustuaðila okkar (skrár og myndbönd) getur tekið lengri tíma og er reynd aftur þar til hún hefur verið staðfest. Aðgöngum notenda sjálfra er ekki eytt með gögnum viðskiptavinar. Afrit í öryggisafritum þjónustuaðila okkar eyðast þegar þau öryggisafrit renna út samkvæmt varðveislureglum þjónustuaðilanna.

12. Ábyrgð

  • Að því undanskildu sem beinlínis kemur fram í skilmálunum er þjónustan veitt „eins og hún er“, án frekari trygginga eða yfirlýsinga. Við berum ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem rekstrartapi, missi hagnaðar eða tjóni vegna gagnataps sem rekja má til notkunar viðskiptavinar.
  • Heildarábyrgð okkar vegna þjónustunnar takmarkast við fjárhæð sem viðskiptavinur hefur greitt fyrir hana síðustu 12 mánuði áður en tjónsatburður varð.
  • Takmarkanirnar gilda ekki um tjón sem valdið er af ásetningi eða stórfelldu gáleysi, né þegar óheimilt er að takmarka ábyrgð samkvæmt gildandi lögum.
  • Hvorugur aðili ber ábyrgð á vanefndum sem stafa af atvikum sem hann ræður ekki við (force majeure), svo sem náttúruhamförum, netárásum eða bilunum hjá þriðju aðilum sem ekki mátti sjá fyrir.

13. Trúnaður

Aðilar skulu gæta trúnaðar um upplýsingar sem þeir fá hvor frá öðrum og eru merktar sem trúnaðarmál eða eru augljóslega trúnaðarmál, þar á meðal efni viðskiptavinar. Trúnaðarskyldan helst eftir að viðskiptum lýkur.

14. Breytingar á skilmálum

Við getum breytt skilmálunum. Verulegar breytingar eru tilkynntar stjórnendum með minnst 30 daga fyrirvara. Viðskiptavinur sem samþykkir ekki verulega breytingu getur sagt upp áskrift sinni áður en breytingin tekur gildi og fengið ónotaðan hluta greidds tímabils endurgreiddan. Haldi viðskiptavinur áfram notkun eftir að breyting tekur gildi telst hann hafa samþykkt hana. Skriflegir Enterprise-samningar ganga framar skilmálunum að því marki sem þeir víkja frá þeim.

15. Lög og varnarþing

Um skilmálana gilda íslensk lög, að undanskildum lagaskilareglum og samningi Sameinuðu þjóðanna um samninga um sölu á vöru milli ríkja (CISG). Rísi ágreiningur sem ekki leysist með samkomulagi skal reka mál vegna hans fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og er það eina varnarþingið, nema um annað sé samið í skriflegum Enterprise-samningi.

16. Hafa samband

Vestra AI ehf., Bolholt 8, 105 Reykjavík. Netfang: vestra@vestra.is.