Vinnslusamningur

Síðast uppfært 20. nóvember 2026

Textinn er birtur á íslensku og ensku. Um notkunarskilmálana og vinnslusamninginn gildir að íslenska útgáfan gengur framar gagnvart viðskiptavinum með staðfestu á Íslandi en enska útgáfan gagnvart öllum öðrum viðskiptavinum.

Samningur þessi er gerður samkvæmt 28. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar (ESB) 2016/679 (GDPR) og 25. gr. laga nr. 90/2018 og, eftir því sem við á, 28. gr. bresku persónuverndarreglugerðarinnar (UK GDPR) og 9. gr. svissnesku persónuverndarlaganna (FADP), milli viðskiptavinar sem notar Slapp Work („ábyrgðaraðili“) og Vestra AI ehf., kt. 570125-0360, Bolholt 8, 105 Reykjavík („vinnsluaðili“). Hann er hluti af notkunarskilmálum og tekur gildi án undirritunar þegar viðskiptavinur samþykkir skilmálana með því að byrja að nota þjónustuna. Enterprise-viðskiptavinir geta fengið undirritað eintak með beiðni á vestra@vestra.is.

1. Viðfang og tilgangur

Vinnsluaðili vinnur persónuupplýsingar fyrir hönd ábyrgðaraðila í þeim eina tilgangi að veita Slapp Work: að gera starfsfólki ábyrgðaraðila kleift að eiga samskipti, deila efni og finna hvert annað, og að gera stjórnendum hans kleift að stýra aðgangi og efni.

Eigin vinnsla vinnsluaðila. Auk vinnslu fyrir hönd ábyrgðaraðila skráir vinnsluaðili hvernig þjónustan er notuð og vinnur þá skráningu sem sjálfstæður ábyrgðaraðili í skilningi GDPR, samkvæmt eftirfarandi skilmálum, sem eru hluti af samningi þessum:

  • a) Upplýsingar. Eingöngu eftirfarandi flokkar: fyrir hverja aðgerð í þjónustunni tegund hennar og tími og auðkenni aðgangs, aðildar, fyrirtækis og þess atriðis sem aðgerðin varðar, en aldrei efni atriðisins; fastir kóðar og já/nei-gildi sem lýsa aðgerðinni (til dæmis hvaða reitum prófíls var breytt, hvaða viðbragð var valið, hverju var svarað um viðburð eða hvort færsla innihélt myndir); hlutverk, áskriftarleið, staða áskriftar, kerfi, útgáfa apps og tungumál; hvort aðgangur eða fyrirtæki er á vegum vinnsluaðila sjálfs eða til prófunar; fjöldi, stærð og tímalengd; dagleg virkni hvers notanda (hvenær hann var fyrst og síðast virkur, áætlaður virknitími og kerfi); innskráningarlotur (tími, hvort í síma og hvort um aðstoðarlotu var að ræða); hvaðan aðgangur og fyrirtæki komu (herferðarmerkingar, sem í leitarauglýsingu geta falið í sér leitarorðið sem auglýsingin birtist við, lén vefsins sem vísaði á okkur, fyrsta síðan og valkvætt svar við spurningunni „Hvernig fréttirðu af Slapp Work?“, og smellauðkenni auglýsinga aðeins með samþykki viðkomandi); val hvers og eins um notkunarmælingar og andmæli; daglegar tölur og staða hvers fyrirtækis; og saga áskriftar, þar á meðal ástæða og valkvæð athugasemd við uppsögn. Í skráningunni er aldrei efni, heiti skráa, texti skilaboða eða það sem leitað er að í þjónustunni.
  • b) Tilgangur. Eingöngu: (1) reikningagerð og umsýsla áskriftarleiða og notendafjölda; (2) umsýsla aðganga og aðstoð við viðskiptavini, þar á meðal þjónustuskilaboð til stjórnenda; (3) öryggi og varnir gegn misnotkun og svikum; (4) viðhald og umbætur á áreiðanleika, afköstum og virkni þjónustunnar; (5) tölur um innleiðingu og stöðu þjónustunnar hjá hverju fyrirtæki og samantekin innri og fjárhagsleg uppgjör; (6) að uppfylla lagaskyldur.
  • c) Ábyrgðaraðili staðfestir og heimilar að vinnsluaðili fái þessa skráningu í þessum tilgangi.
  • d) Vinnsluaðili bætir ekki við tilgangi eða flokki upplýsinga nema hann tilkynni stjórnendum ábyrgðaraðila það skriflega með minnst 30 daga fyrirvara. Samþykki ábyrgðaraðili ekki breytinguna getur hann sagt upp þjónustunni áður en hún tekur gildi og fengið ónotaðan hluta greidds tímabils endurgreiddan.
  • e) Vinnsluaðili notar skráninguna ekki til að vinna með efni, til að gera persónusnið um einstaka notendur eða meta þá, né til auglýsinga, og hann selur hana ekki og notar hana ekki til markaðssetningar gagnvart notendum. Hann afhendir hvorki ábyrgðaraðila né öðrum skráninguna til að fylgjast með starfsfólki eða meta það, nema lög skyldi hann til þess.
  • f) Skráning einstakra aðgerða er varðveitt í að hámarki 25 mánuði. Vinnsluaðili ber ábyrgð á þessari vinnslu sem ábyrgðaraðili.
  • g) Þegar PostHog, Convex og Vercel vinna þessa skráningu gera þau það sem vinnsluaðilar vinnsluaðila sjálfs en ekki sem undirvinnsluaðilar samkvæmt 6. gr. PostHog vinnur engar persónuupplýsingar fyrir hönd ábyrgðaraðila og er því ekki talið upp í viðauka 1.

2. Tegundir upplýsinga og hinir skráðu

  • Hinir skráðu: starfsfólk ábyrgðaraðila og aðrir sem hann veitir aðgang, svo sem verktakar og samstarfsaðilar.
  • Upplýsingar: nafn, netfang, starfsheiti, deild, starfsstöð, símanúmer, yfirmaður, myndir, efni sem notendur setja inn (færslur, athugasemdir, skilaboð, skrár, viðburðir og svör við þeim, kannanir og atkvæði, greinar), aðild að hópum, viðbrögð, merkingar um séðar færslur, staðfestingar og lestrarstaða, síðasti virknitími sem birtist í þjónustunni, auðkenni úr einskráningu og notendaskrá ábyrgðaraðila, tilkynningaauðkenni og auðkenni uppsetningar tækja og IP-tölur í annálum hýsingaraðila.
  • Viðkvæmar upplýsingar: þjónustan er ekki ætluð fyrir viðkvæmar persónuupplýsingar (9. gr. GDPR). Ábyrgðaraðili ber ábyrgð á að notendur setji þær ekki inn nema lögmætur grundvöllur sé fyrir hendi.
  • Fellur ekki hér undir: skráning vinnsluaðila á notkun þjónustunnar, sem fer eftir 2. mgr. 1. gr.

3. Gildistími

Samningurinn gildir meðan vinnsluaðili vinnur persónuupplýsingar fyrir ábyrgðaraðila, þ.m.t. á prufutíma og á varðveislutíma eftir að viðskiptum lýkur (sjá 10. gr.).

4. Skyldur ábyrgðaraðila

Ábyrgðaraðili ber ábyrgð á að vinnslan eigi sér lögmætan grundvöll, að hinum skráðu sé veitt fræðsla og að fyrirmæli hans séu í samræmi við lög. Notkun stillinga og stjórnborðs Slapp Work telst til fyrirmæla ábyrgðaraðila.

Ábyrgðaraðili ber ábyrgð á að upplýsa starfsfólk sitt fyrir fram um það sem stjórnendur hans og aðrir notendur geta séð um það í þjónustunni (til dæmis hvenær það var síðast virkt, hverjir hafa séð eða staðfest færslu og lestrarstöðu í spjalli) og á því að nota þær upplýsingar á lögmætan hátt, meðal annars samkvæmt 14. gr. laga nr. 90/2018 og reglum Persónuverndar nr. 50/2023 um rafræna vöktun, með síðari breytingum. Vinnsluaðili lætur ábyrgðaraðila í té upplýsingar um þetta, þar á meðal fyrirmynd að fræðslu til starfsfólks, sé þess óskað.

5. Skyldur vinnsluaðila

Vinnsluaðili skal:

  • vinna upplýsingarnar eingöngu samkvæmt skráðum fyrirmælum ábyrgðaraðila, þ.m.t. þessum samningi og skilmálunum, einnig að því er varðar flutning til þriðju landa, nema lög skyldi hann til annars, og upplýsa ábyrgðaraðila um það fyrir fram nema lög banni það;
  • láta ábyrgðaraðila tafarlaust vita ef hann telur fyrirmæli brjóta gegn persónuverndarlögum;
  • tryggja að starfsfólk sem hefur aðgang að upplýsingunum sé bundið trúnaði;
  • gera þær öryggisráðstafanir sem krafist er í 32. gr. GDPR (sjá viðauka 2);
  • fara inn á vinnusvæði ábyrgðaraðila aðeins að því marki sem þarf til að reka þjónustuna og tryggja öryggi hennar, og opna þjónustuna sem einn af notendum ábyrgðaraðila aðeins þegar ábyrgðaraðili biður um aðstoð; slíkar lotur eru skráðar;
  • aðstoða ábyrgðaraðila við að svara beiðnum hinna skráðu um réttindi sín og framsenda honum slíkar beiðnir sem berast vinnsluaðila beint;
  • aðstoða ábyrgðaraðila við skyldur samkvæmt 32.–36. gr. GDPR, svo sem mat á áhrifum á persónuvernd, eftir því sem eðlilegt er miðað við eðli vinnslunnar, og veita honum þær upplýsingar sem hann þarf um það sem stjórnendur hans og aðrir notendur geta séð um notendur í þjónustunni;
  • nota upplýsingarnar ekki í eigin þágu, til markaðssetningar eða til að þjálfa gervigreindarlíkön, að undanskilinni þeirri eigin vinnslu sem lýst er í 2. mgr. 1. gr.

6. Undirvinnsluaðilar

Ábyrgðaraðili veitir almenna heimild til að nota þá undirvinnsluaðila sem taldir eru upp í viðauka 1. Vinnsluaðili skal hafa gert skriflega samninga við þá sem leggja á þá skyldur um persónuvernd sem veita ekki minni vernd en þessi samningur (4. mgr. 28. gr. GDPR). Vinnsluaðili tilkynnir ábyrgðaraðila um nýja undirvinnsluaðila með minnst 30 daga fyrirvara. Ábyrgðaraðili getur andmælt á málefnalegum forsendum innan þess frests og, náist ekki lausn, sagt upp þjónustunni og fengið ónotaðan hluta greidds tímabils endurgreiddan. Vinnsluaðili ber ábyrgð gagnvart ábyrgðaraðila á efndum undirvinnsluaðila sinna.

7. Flutningur út fyrir EES

Gagnagrunnurinn er hýstur innan EES (á Írlandi). Sumir undirvinnsluaðilar eru í Bandaríkjunum eða reka alþjóðleg net, þar á meðal Cloudflare, sem geymir og miðlar myndum, skrám og myndböndum sem hlaðið er upp án þess að binda þau við EES. Flutningur til undirvinnsluaðila utan EES byggist á ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um fullnægjandi vernd samkvæmt gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU-U.S. Data Privacy Framework) þegar undirvinnsluaðili er vottaður samkvæmt honum, en annars á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB (framkvæmdarákvörðun (ESB) 2021/914) í vinnsluskilmálum undirvinnsluaðilans. Í viðauka 1 kemur fram á hvaða grundvelli flutningur til hvers undirvinnsluaðila byggist. Hafi ábyrgðaraðili staðfestu í þriðja landi sem ekki nýtur ákvörðunar um fullnægjandi vernd, og fellur vinnsla hans ekki undir GDPR, gildir 4. eining (frá vinnsluaðila til ábyrgðaraðila) sömu stöðluðu samningsákvæða um flutning frá vinnsluaðila til ábyrgðaraðila og er hún hluti af samningi þessum með tilvísun. Í því skyni er I. viðauki ákvæðanna fylltur út með upplýsingum úr samningi þessum, um ákvæðin gilda íslensk lög (17. ákvæði) og ágreiningur um þau skal rekinn fyrir íslenskum dómstólum (18. ákvæði). Flutningur til ábyrgðaraðila í Bretlandi og Sviss byggist á ákvörðunum framkvæmdastjórnar ESB um fullnægjandi vernd í þeim ríkjum.

8. Öryggisbrestir

Vinnsluaðili tilkynnir ábyrgðaraðila án ótilhlýðilegrar tafar, og eigi síðar en 48 klukkustundum eftir að hann verður hans var, um öryggisbrest sem varðar persónuupplýsingar ábyrgðaraðila. Í tilkynningunni skal eftir föngum lýsa eðli brestsins, flokkum og fjölda hinna skráðu, líklegum afleiðingum og þeim ráðstöfunum sem gripið hefur verið til, svo ábyrgðaraðili geti sinnt tilkynningarskyldu sinni til hlutaðeigandi eftirlitsyfirvalds og hinna skráðu.

9. Úttektir

Vinnsluaðili lætur ábyrgðaraðila í té þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að sýna fram á að hann uppfylli samninginn og heimilar úttektir ábyrgðaraðila eða óháðs endurskoðanda sem bundinn er trúnaði. Úttekt skal boðuð með minnst 30 daga fyrirvara, fara fram á venjulegum vinnutíma og ekki oftar en einu sinni á ári nema öryggisbrestur gefi tilefni til. Ábyrgðaraðili ber kostnað af úttekt.

10. Lok vinnslu

Þegar viðskiptum lýkur varðveitir vinnsluaðili persónuupplýsingarnar í minnst 90 daga svo ábyrgðaraðili geti haldið áfram eða fengið afrit. Að vali ábyrgðaraðila skilar vinnsluaðili upplýsingunum, með því að afhenda afrit á algengu, tölvulæsilegu sniði (stjórnendur ábyrgðaraðila geta einnig sótt í stjórnborðinu afrit af því efni sem þeir hafa aðgang að í þjónustunni, án einkasamtala sem þeir eiga ekki aðild að og án þess sem skilmálarnir telja upp), og eyðir þeim. Eyðing fer fram innan 30 daga frá beiðni ábyrgðaraðila, í stjórnborðinu eða skriflega, enda hafi virkri áskrift eða samningi verið lokið, og annars um sex mánuðum eftir að viðskiptum lýkur, en aldrei fyrr en dagsetning eyðingarinnar hefur verið stjórnendum ábyrgðaraðila aðgengileg í appinu í minnst 30 daga. Fyrir utan þann tíma sem eyðing úr kerfum undirvinnsluaðila getur tekið er eyðingu aðeins frestað ef lög Evrópusambandsins eða landslög krefjast varðveislu, ef ábyrgðaraðili óskar eftir lengri tíma eða ef vinnsluaðili gerir hlé á henni til að ljúka málum við ábyrgðaraðila. Eyðing úr kerfum undirvinnsluaðila (skrár og myndbönd) getur tekið lengri tíma og er reynd aftur þar til hún hefur verið staðfest. Afrit í öryggisafritum undirvinnsluaðila eyðast þegar þau öryggisafrit renna út samkvæmt varðveislureglum undirvinnsluaðilanna.

11. Ábyrgð og ágreiningur

Um ábyrgð aðila fer samkvæmt 82. gr. GDPR og ábyrgðartakmörkunum í notkunarskilmálum að því marki sem lög leyfa. Um samninginn gilda íslensk lög og mál vegna ágreinings skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, nema um annað sé samið í skriflegum Enterprise-samningi. Víki samningur þessi frá skilmálunum að því er varðar vinnslu persónuupplýsinga gengur hann framar.

Viðauki 1: Undirvinnsluaðilar

AðiliHlutverkStaðsetning og grundvöllur flutnings
Convex, Inc.Gagnagrunnur og bakendi, afritaskrár og skrár sem hlaðið var upp áður en skrár fluttust til CloudflareÍrland (AWS eu-west-1). Convex, Inc. og undirvinnsluaðilar þess í Bandaríkjunum: stöðluð samningsákvæði í vinnsluskilmálum Convex
Cloudflare, Inc.Geymsla og miðlun mynda, skráa og myndbanda (R2 og Stream)Alþjóðlegt net Cloudflare, ekki bundið við EES: gagnaverndarrammi ESB og Bandaríkjanna (Data Privacy Framework)
Clerk, Inc.Innskráning, einskráning (SSO), notendaskrá (SCIM) og tölvupóstur vegna innskráningar og boðaBandaríkin: gagnaverndarrammi ESB og Bandaríkjanna (Data Privacy Framework)
Vercel Inc.Hýsing vefforritsinsBandaríkin og önnur lönd þar sem Vercel starfar: gagnaverndarrammi ESB og Bandaríkjanna (Data Privacy Framework)
650 Industries, Inc. (Expo)Miðlun ýtitilkynninga í síma (tilkynningaauðkenni tækja og auðkenni uppsetningar) og afhending uppfærslna á appinu (EAS Update)Bandaríkin: gagnaverndarrammi ESB og Bandaríkjanna (Data Privacy Framework)
Apple Inc. og Google LLCAfhending ýtitilkynninga í iOS- og Android-tækiBandaríkin. Apple: stöðluð samningsákvæði, samkvæmt upplýsingum Apple. Google: gagnaverndarrammi ESB og Bandaríkjanna (Data Privacy Framework)

Viðauki 2: Öryggisráðstafanir

  • Öll samskipti milli tækja, vefs og netþjóna eru dulkóðuð með TLS; hýsingaraðilar dulkóða gögn í geymslu.
  • Aðgangsstýring: gögn hvers fyrirtækis eru aðskilin og hver aðgerð er heimildaprófuð á netþjóni miðað við innskráðan notanda, fyrirtæki hans og hlutverk (eigandi, stjórnandi, starfsmaður, umsjónarmaður hóps). Myndir og skrár sem hlaðið er upp eru geymdar á handahófskenndum vefslóðum sem ekki er hægt að giska á, en hver sá sem hefur slóðina getur opnað skrána; myndbönd eru spiluð um undirritaða tengla sem renna út.
  • Innskráning með tölvupóstkóða, lykilorði, Microsoft-, Google- eða Apple-aðgangi eða einskráningu (SAML/OIDC); fyrirtæki geta krafist einskráningar og stýrt notendum með SCIM. Þegar notandi er gerður óvirkur lokast aðgangur hans að fyrirtækinu strax.
  • Aðgangur starfsfólks vinnsluaðila að framleiðslugögnum er takmarkaður við það sem nauðsynlegt er.
  • Hýsing: gögn eru geymd hjá þeim hýsingaraðilum sem taldir eru upp í viðauka 1.
  • Rekstur og villur eru vaktaðar og annálaskrár varðveittar í takmarkaðan tíma.