1. Í appinu eða á vefnum
- Í appinu (iOS og Android): opnaðu flipann Valmynd og ýttu á Eyða aðgangi neðst á síðunni.
- Á vefnum: smelltu á prófílmyndina þína, veldu Stillingar og smelltu á Eyða aðgangi neðst á síðunni.
Ýttu á Áfram, skrifaðu EYÐA í reitinn og veldu Eyða aðgangi varanlega. Aðganginum er eytt strax og þú ert skráð(ur) út. Ekki er hægt að afturkalla eyðinguna.
Ef þú ert eini eigandi fyrirtækis þar sem aðrir notendur eru virkir þarftu fyrst að gera einhvern annan að eiganda. Ef þú ert eini virki notandi fyrirtækis með greidda áskrift þarftu fyrst að segja áskriftinni upp.
2. Beiðni án appsins
Ef þú kemst ekki inn í Slapp Work getur þú beðið um eyðingu með tölvupósti á vestra@vestra.is. Sendu hann frá netfanginu sem aðgangurinn er skráður á, með efnislínunni „Eyða aðgangi“, svo við getum staðfest að beiðnin komi frá þér.
Við eyðum aðganginum á sama hátt og lýst er hér að neðan og svörum innan mánaðar.
3. Hverju er eytt?
- Innskráning: aðganginum hjá innskráningarþjónustu okkar er eytt, ásamt nafni, netfangi, lykilorði og tengdum innskráningum (t.d. Microsoft, Google eða Apple). Ekki er hægt að skrá sig inn á hann aftur. Nýskráning með sama netfangi byrjar frá grunni.
- Prófíll: í hverju fyrirtæki er nafninu þínu breytt í „Fyrrum starfsmaður“ og netfangi, starfsheiti, deild, starfsstöð, símanúmeri, kynningu, prófílmynd, forsíðumynd og yfirmanni eytt. Aðgangurinn er gerður óvirkur og ekki er hægt að virkja hann aftur.
- Virkni: eftirfylgni (í báðar áttir), lokanir, aðild að hópum og hópspjöllum, beiðnir um aðild að hópum, svör við viðburðum, tilkynningar, vistaðar færslur, tilkynningatókar fyrir ýtitilkynningar og virknistaða. Þú ert einnig fjarlægð(ur) sem yfirmaður samstarfsfólks.
- Fyrirtæki: ef þú ert eini virki notandi fyrirtækis er því lokað um leið og gögnum þess síðan eytt samkvæmt 6. gr. persónuverndarstefnunnar.
4. Hvað er varðveitt?
- Efni sem þú hefur skrifað (færslur, athugasemdir, spjallskilaboð og greinar í þekkingarsafni) tilheyrir fyrirtækinu, sem ber ábyrgð á því, og birtist áfram undir nafninu „Fyrrum starfsmaður“. Sama á við um viðbrögð, atkvæði í könnunum og merkingar um séðar færslur, svo talningar breytist ekki. Bein samtöl haldast hjá viðmælanda þínum. Viljir þú að efnið hverfi getur þú eytt því sjálf(ur) áður en þú eyðir aðganginum eða beðið vinnuveitanda þinn um að eyða því.
- Tæknilegar annálaskrár eru varðveittar í allt að 30 daga.
- Reikningar og bókhaldsgögn fyrirtækja eru varðveitt í 7 ár samkvæmt lögum um bókhald.
Nánari upplýsingar eru í persónuverndarstefnunni. Spurningar má senda á vestra@vestra.is.